One of a kind
jæja þá er komið að því:( Ég komst að því að ég er orðin ellismellur. Ég fór nefninlega á skólaball um helgina og í mesta sakleysi mínu dreg ég upp óþverra sem kemur ekkert sérstaklega góð lykt af og ekki líður á löngu heldur en einhver einkennisklædd mannvera kemur og tekur þetta út úr mér og biður mig vinsamlegast að slökkva í þessu íþróttablysi. Þá varð mér ljóst að ég hef verið að lifa í blekkingu. Ég er ekkert í Fsu ég er ennþá í gaggó og ég var á diskóteki í féló... Hversu sorglegt er það að vera á balli útúr kókuð hóra og má ekki einu sinni reykja, þetta er náttúrulega hneiksli dauðans.. og þar með ákvað ég að gerast uppreisnar seggur og mótmæla. og koma með eitt stykki fleiga línu vér mótmælum allir:) See ya later...
Jæja, Nú er helgin liðin og grá kaldur hversdagsleikinn er tekinn við, og þessum djö.. kennurum tekst alltaf að láta mann eiga ekkert líf alla vikuna með heimalærdóm. En annars var helgin svolítið viðburðar rík hjá mér: ég var samt bara að vinna á föstudag og fór svo á árshátíð með The White House Selfoss DC og við lentum á Broadway á alveg hreint brilliant sýningu og enduðum svo á Nasa með Ný dönsk og þar var sko tjúttað af sér allan bjórinn oþh. Jæja ég verð víst að halda áfram að lære mine lektier kærlig hilsen Skvaldra
Nau nau Þetta gat hún.. Stelpan
Jú ég er að tala um mig sem er að gera þessa bloggsíðu. Þetta verður síða dauðans þegar ég er búin að læra á þetta. En allavega þá heiti ég Valgerður og er oft kölluð skvaldra (og þið meigið giska af hverju) og allavega þá ætla ég að reyna að gera þessa síðu mjög svala og reyna að koma með fullt af dóti sem gæti hagnast upprennandi alkóhólistum já eða bara kassadömum í bónus. Reyni að vera dugleg see ya...